HomeFréttirLeikir dagsins: Lokaumferðin í Iceland Express deild kvenna

Leikir dagsins: Lokaumferðin í Iceland Express deild kvenna

 
Í kvöld er komið að lokaumferðinni í Iceland Express deild kvenna og hefjast allir leikirnir kl. 19:15. Línurnar eru skýrar í A-riðli, Hamar er deildarmeistari og Keflavík, KR og Haukar eru föst í sínum sætum, eins og upptalin hér að framan. Ýmislegt gæti þó komið í ljós í B-riðlinum en eina sem er öruggt þar er að Njarðvík og Snæfell munu leika í úrslitakeppninni en Grindvíkingar og Fjölnir geta fallið í 1. deild kvenna.
Leikir kvöldsins:
 
Haukar-KR
Keflavík-Hamar
Njarðvík-Snæfell
Fjölnir-Grindavík
 
Eins og fyrr greinir eru það Hamar og Keflavík sem munu sitja hjá í fyrstu umferð úrslitakeppninnar en koma inn í undanúrslitum. KR og Haukar munu því mæta Njarðvík og Snæfell í fyrstu umferð úrslitakeppninnar en það ræðst í kvöld hvernig þessi fyrsta umferð mun líta út. Til þess að Snæfell verði efst í B-riðli þurfa þær að vinna Njarðvík í kvöld og skiptir engu mál með hve miklum mun þar sem Snæfell hefur betur innbyrðis í stigum en Njarðvík hefur unnið 2 leiki en Snæfell 1. Sigur í kvöld jafnar vinningshlutfallið og þá mun Snæfell hafa betur innbyrðis á stigum. Njarðvíkursigur í kvöld tryggir þeim toppsætið og 3 sigra í 4 leikjum liðanna í deildinni.
 
Nýliða Fjölnis bíður ærinn starfi, þær eru á botni deildarinnar, 2 stigum á eftir Grindavík og þurfa sigur í kvöld og það með 32 stiga mun! Það er eini möguleiki liðsins á því að halda sæti sínu í deildinni og fella Grindavík.
 
Úrslitakeppnin:
Hamar og Keflavík sitja hjá.
Ef Njarðvík vinnur í kvöld er fyrsta umferð KR-Snæfell og Haukar-Njarðvík
Ef Snæfell vinnur í kvöld er fyrsta umferð KR-Njarðvík og Haukar-Snæfell
 
Fréttir
- Auglýsing -