Undir 16 og 18 ára lið Íslands leika sinn annan dag í dag á Norðurlandamótinu í Kisakallio gegn Eistlandi.
Ásamt Íslandi eru það Danmörk, Svíþjóð, Finnland, Noregur og Eistland sem senda lið til leiks en mót þetta hefur verið haldið í fjölmörg ár við góðan orðstýr.
Karfan.is er á svæðinu og mun gera mótinu góð skil beint frá Finnlandi. Umfjallanir, myndir og viðtöl úr öllum leikjum Íslands auk annarra fregna. Allir leikirnir eru í beinni útsendingu á Youtube rás Finnska körfuboltasambandsins sem er einnig með lifandi tölfræði frá öllum leikjum.
Leikir dagsins gegn Danmörk:
U18 drengja – kl. 13:00
U18 stúlkna – kl. 15:00
U16 stúlkna – kl. 15:15
U16 drengja – kl. 17:15
Hægt er að nálgast lifandi tölfræði á basket.fi.
Hægt er að nálgast beina útsendingu á Youtube.
Samantekt frá leikjum gærdagsins



