Úrslitaeinvígi Subway deildar karla rúllar af stað annað kvöld er Valur tekur á móti Tindastól í Origo Höllinni kl. 19:15.
Um er að ræða sömu lið og kepptu til úrslita á síðasta ári, en þá hafði Valur sigur í oddaleik eftir æsispennandi einvígi, 3-2.
Hér fyrir neðan má sjá alla leikdaga einvígis liðanna.
Leikdagar úrslita 2023
6. maí – Valur Tindastóll – Origo Höllin – Kl. 19:15
9. maí – Tindastóll Valur – Síkið – Kl. 19:15
12. maí – Valur Tindastóll – Origo Höllin – Kl. 19:15
15. maí – Tindastóll Valur – Síkið – Kl. 19:15 (ef þarf)
18. maí – Valur Tindastóll – Origo Höllin – Kl. 19:15 (ef þarf)