spot_img
HomeFréttirLeBron: Ég er spenntur

LeBron: Ég er spenntur

14:00

{mosimage}

LeBron James stórstjarna Clevaland Cavaliers er ánægður með þau skipti sem félagið gerði í vikunni en hann hefur kallað lengi eftir breytingum á liði sínu. Félagið fékk þá Ben Wallace, Wally Szczerbiak, Joe Smith og Delonte West og telur LeBron að þetta séu góðir leikmenn fyrir liðið.

,,Ég er spenntur,” sagði LeBron. ,,Þetta er ekki það sem ég bjóst við. Þið[fréttamenn] heyrðuð hvað ég vildi en ég er ánægður með niðurstöðuna. Við höfum fengið sterka leikmenn til liðsins. Það kom mjög á óvart að labba að inn í búningsklefann og allt var öðruvísi.”

LeBron lét vita að hann vildi fá Jason Kidd til liðsins en þetta er samt niðurstaða sem hann unar enda styrkist liðið á mörgum vígstöðum. ,,Við höfum bætt við okkur dýpt í framherjastöðunum, sem við þurftum á að halda og við bættum við okkur skyttum, sem við þurftum á að halda. Það er stutt í úrslitakeppnina en það sem frábært við þessa stráka er að þeir hafa leikreynslu úr úrslitakeppninni,” sagði LeBron.

[email protected]

Mynd: AP

Fréttir
- Auglýsing -