spot_img
HomeFréttirLauri: Þetta er virkilega gott lið

Lauri: Þetta er virkilega gott lið

 

Íslenska landsliðinu tókst ekki að landa sigri í Helsinki gegn sterku liði Finna og er því HM draumurinn úti. Íslenska liðið hitti afar illa fyrir utan þriggja stiga línuna og lenti í slæmum villuvandræðum rétt undir lok leiks sem gerði róðurinn enn þyngri.  91-77 tap því raunin og Ísland úr leik í undankeppni HM.

 

Martin Hermannsson var frábær í liði Íslands en hann fékk fimmtu villuna sína snemma í fjórða hluta og varð því að fara af velli með 18 stig og 5 stoðsendingar. Hjá Finnum var það að sjálfsögðu enginn annar en leikmaður Chicago Bulls, Lauri Markkanen sem leiddi með 31 stig og 7 fráköst. 

 

Karfan spjallaði við Lauri eftir leik í Hartwall Arena í Helsinki.

 

 

Fréttir
- Auglýsing -