spot_img
HomeFréttirLarry Thomas með Þór Akureyri

Larry Thomas með Þór Akureyri

 

Þór Akureyri hefur samið við bandaríska bakvörðinn Larry Thomas og mun hann spila með Þór í 1. deildinni á komandi leiktíð.

 

 Larry sem er 24 ára gamall lék síðast með Hamri í Hveragerði í 1. deildinni. 

Larry spilaði 30 leiki með liðinu og í þeim leikjum skoraði hann 20 stig að meðaltali og tók 7 fráköst og var með 4 stoðsendingar.  

Spilatími kappans var um 20 mínútur í leik en Hamar tefldi fram tveimur bandarískum leikmönnum í vetur sem skiptu spilatímanum bróðurlega á milli sín. 

 

Lárus Jónsson þjálfari Þórs kveðst vera mjög ánægður með að Larry muni spila með liðinu næsta tímabil. ,,Larry stóð sig vel hjá Hamri í fyrra, spilar góða vörn og gerir liðsfélagana betri. Auk þess þá fer gott orð af honum sem persónu og hann er mögnuð skytta“ sagði Lárus í stuttu spjalli við heimasíðu Þórs

Fréttir
- Auglýsing -