Pollamót Þórs í körfuknattleik fór fram í Íþróttahöllinni á Akureyri helgina 2. og 3. október og var mótið í ár það allra stærsta í sögunni. Alls mættu 39 lið til leiks og keppendur voru 355 talsins, sem er nýtt þátttökumet. Mótið heppnaðist frábærlega og lauk með uppseldu lokahófi í Sjallanum þar sem 300 manns fögnuðu saman.
Mikil spenna og gleði einkenndu leikina á vellinum en úrslit í einstökum deildum urðu sem hér segir:
- Pæjudeildin (konur 20 ára og eldri): Lið Dagsbrúnar stóð uppi sem sigurvegari eftir spennandi og framlengdan úrslitaleik gegn Draumaliðinu, sem skipað var fyrrum landsliðskonum.
- Polladeildin (karlar 25–39 ára): Grjóti Juniors tryggði sér sigurinn eftir harða keppni við lið Only Hsuman.
- Lávarðadeildin (karlar 40 ára og eldri): Berry and the Pace-makers hrósuðu sigri eftir leik gegn UBK.
Trodd’essu voru valdar með flottustu búningana á mótinu og Snæfellsgellur og Fleiri Snæfellsgellur hlutu verðlaun fyrir bestu tilþrifin fyrir skemmtilega dansrútínu.
Lokahófið í Sjallanum sló algjörlega í gegn undir dyggri veislustjórn Rúnars Eff og Snæbjörn H. Kristjánsson sá um veitingarnar. Andri Már Eggertsson (Nablinn) veitti verðlaun og stýrði uppboði á áritaðri Grindavíkurtreyju frá Jeremy Pargo. Úlfur Úlfur og Kristmundur Axel héldu svo uppi stuðinu á Sjallaballinu fram á rauða nótt. Þá var sérstaklega klappað fyrir frumkvöðlinum Eiríki Sigurðssyni sem lagði grunninn að öldungamótum á Akureyri ásamt bróður sínum Jóhanni.
Skipuleggjendur hafa þegar tilkynnt að næsta Pollamót fari fram 1. og 2. október 2027.
Hægt er að skoða myndasöfn frá mótinu á eftirfarandi hlekkjum:




