Körfuboltaáhugafólk fær nú nýjan vettvang til að spreyta sig á með tilkomu Bónus Fantasy, nýs draumaliðsleiks tileinkaðs íslenskum körfuknattleik. Síðan opnaði á dögunum og hefur farið afar vel af stað, en yfir fjögur hundruð notendur skráðu sig til leiks á fyrsta sólarhringnum.
Leikurinn snýst um að velja sitt eigið lið úr leikmönnum Bónus deildar karla, keppa við vini og félaga og safna stigum eftir frammistöðu leikmanna í leikjum deildarinnar. Að sögn Arnþórs Loga Bjarkasonar, forsvarsmanns verkefnisins, er markmiðið að auka enn frekar áhuga og skemmtun stuðningsfólks í kringum deildina.
Bónus Fantasy er sjálfstætt og einkarekið framtak og er hvorki rekið í samstarfi við Bónus né Körfuknattleikssamband Íslands. Hægt er að kynna sér verkefnið og taka þátt á vefslóðinni bonusfantasy.is.




