Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar barst spurning til sérfræðinganna um það hver væri líklegastur til að hljóta nafnbótina besti ungi leikmaðurinn í Bónusdeild karla á komandi tímabili.
Styrmir Jónasson, sem lék með ÍA en gekk til liðs við Ármann í sumar, hlaut nafnbótina á síðustu leiktíð. Í umræðunni kom fram að nokkrir efnilegir leikmenn væru orðnir of gamlir til að koma til greina í þennan flokk, en þó væri gríðarlega mikil breidd af ungum hæfileikamönnum sem gætu blandað sér í baráttuna.

Sérfræðingar þáttarins voru á því að Arnór Tristan Helgason úr Grindavík væri langlíklegastur til að standa uppi sem besti ungi leikmaðurinn í vetur. Aðrir leikmenn sem voru nefndir til sögunnar sem líklegir til að láta að sér kveða í baráttunni eru:
- Viktor Jónas Lúðvíksson (Stjarnan)
- Lars Erik Bragason (KR)
- Styrmir Jónasson (Ármann)
- Magnús Dagur (Sindri)
- Tómas Orri (ÍR)

Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.




