Dainius Adomaitis, landsliðsþjálfari Litháens, hefur gagnrýnt undankeppniskerfi Alþjóðakörfuknattleikssambandsins (FIBA) og lýst yfir furðu á því að ekkert hafi breyst til batnaðar í aðgengi leikmanna frá því núverandi fyrirkomulag var tekið upp árið 2017.
Adomaitis, sem tók nýlega við litháíska landsliðinu á ný, segir það óeðlilegt að níu árum síðar sé enn jafn erfitt að fá EuroLeague-leikmenn í landsliðsverkefni og engin umgjörð hafi verið sköpuð til að gera þeim auðveldara fyrir að leika fyrir þjóðir sínar. Núverandi undankeppni er sú fimmta sem leikin er eftir þessu fyrirkomulagi síðan 2017.
Að sögn Adomaitis vilja leikmenn – bæði litháískir og erlendir – langflestir spila fyrir landslið sín, en lenda á milli steins og sleggju vegna skuldbindinga hjá félagsliðum og falinna meiðsla. Hann bendir á að félagslið haldi alvarlegum meiðslum oft leyndum fyrir andstæðingum sínum, sem verði til þess að fjölmiðlar og almenningur fái þá ranghugmynd að leikmenn nenni einfaldlega ekki í landsliðið.
Næsti landsleikjagluggi er gríðarlega mikilvægur fyrir Litháen í baráttunni um sæti á HM 2027 í Katar. Liðið valdi átta EuroLeague-leikmenn í 24 manna æfingahóp sinn, þar af sex frá Zalgiris Kaunas (Jonas Valanciunas, Azuolas Tubelis, Arnas Butkevicius, Deividas Sirvydis, Marek Blazevic og Dovydas Giedraitis) auk Rokas Jokubaitis hjá Bayern München og Ignas Sargiunas hjá Fenerbahce.
Leikjadagskráin gerir þeim hins vegar erfitt fyrir. Zalgiris á útileik gegn Real Madrid þann 25. nóvember, aðeins degi áður en Litháen tekur á móti Serbíu í Klaipeda þann 26. nóvember, og í kjölfarið heldur liðið til Bosníu og Hersegóvínu þann 29. nóvember. Litháen situr sem stendur í fjórða sæti J-riðils með fjóra sigra og fjögur töp, en efstu þrjú liðin tryggja sér sæti á lokamótinu.




