spot_img
HomeFréttirLandsliðin hefja leik í dag gegn Finnlandi

Landsliðin hefja leik í dag gegn Finnlandi

 

Undir 16 og 18 ára lið Íslands hefja í dag leik á Norðurlandamóti þessa árs með leikjum gegn heimamönnum í Finnlandi.

 

Ásamt Íslandi eru það Danmörk, Svíþjóð, Finnland, Noregur og Eistland sem senda lið til leiks en mót þetta hefur verið haldið í fjölmörg ár við góðan orðstýr. Það er U16 lið stúlkna og drengja sem eiga fyrstu leiki dagsins, kl 10:30 að Íslenskum tíma. 

 

Karfan.is er á svæðinu og mun gera mótinu góð skil beint frá Finnlandi. Umfjallanir, myndir og viðtöl úr öllum leikjum Íslands auk annarra fregna. Allir leikirnir eru í beinni útsendingu á Youtube rás Finnska körfuboltasambandsins sem er einnig með lifandi tölfræði frá öllum leikjum. 

 

Leikir dagsins gegn Finnlandi:

U16 drengja – kl. 10:30

U16 stúlkna – kl. 10:30

U18 stúlkna – kl. 10:45

U18 drengja – kl. 12:45

 

 

 

Hægt er að nálgast lifandi tölfræði á basket.fi.

Hægt er að nálgast beina útsendingu á Youtube.

Myndir voru teknar af liðunum í gær hér.

Fréttir
- Auglýsing -