spot_img
HomeFréttirLandsliðið mætt til Kósovó - Mikilvægir leikir á fimmtudag og laugardag

Landsliðið mætt til Kósovó – Mikilvægir leikir á fimmtudag og laugardag

A landslið karla er að mestu komið til Pristina í Kósovó þar sem liðið mun leika lokaleiki sína í þessum fasa undankeppni heimsmeistaramótsins 2023. Liðið mun leika tvo leiki, þann fyrri gegn Slóvakíu á fimmtudaginn og þann seinni gegn Lúxemborg á laugardag.

Ísland er í gífurlega góðri stöðu fyrir leikina tvo. Eru í efsta sæti riðilsins, með þrjá sigra og aðeins eitt tap það sem af er keppni. Ekki má þó mikið útaf bregða. Fyrir neðan Ísland í riðlinum eru Slóvakía og Kósovó með tvo sigra, en Lúxemborg rekur svo lestina með einn sigur.

Hérna er heimasíða mótsins

Fréttir
- Auglýsing -