HomeFréttirLakers með 8 í röð: Enn tapa Heat

Lakers með 8 í röð: Enn tapa Heat

 
Í nótt fóru sex leikir fram í NBA deildinni þar sem Kobe Bryant og félagar í LA Lakers unnu sinn áttunda deildarsigur í röð en Miami Heat töpuðu sínum fimmta leik í röð og að þessu sinni voru það Portland Trail Blazers sem komu í heimsókn til Miami og fóru heim sigri hrósandi. Miklar vangaveltur eru nú vestanhafs um möguleika Heat í úrslitakeppninni þar sem liðið stendur verst að vígi gegn öðrum toppliðum deildarinnar í innbyrðis viðureignum.
Atlanta 87-101 LA Lakers
Kobe Bryant var stigahæstur hjá Lakers með 26 stig, 6 fráköst og 4 stoðsendingar. Hjá Atlanta var Al Horford með 17 stig og 9 fráköst. Með þessum 26 stigum í nótt færðist Bryant upp í sjötta sæti yfir flest stig skoruð í NBA deildinni en hann hefur nú skorað 27.423 stig.
 
Miami 96-105 Portland
LaMarcus Aldridge gerði 26 stig og tók 4 fráköst í liði Portland en hjá Heat var Dwyane Wade með 38 stig og LeBron James bætti við 31 stigi. Heat hafa nú, eins og áður segir, tapað fimm leikjum í röð í deildinni.
 
Önnur úrslit næturinnar:
 
Cleveland 85-95 Golden State
Indiana 100-110 Philadelphia
Washington 76-95 Milwaukee
Phoenix 113-110 Houston
 
Mynd/ Bryant og félagar í Lakers eru á skriði um þessar mundir.
 
Fréttir
- Auglýsing -