spot_img
HomeFréttirKristinn er bjartsýnn fyrir hönd Íslands í kvöld "Við náum vel saman...

Kristinn er bjartsýnn fyrir hönd Íslands í kvöld “Við náum vel saman sem lið”

Ísland leikur sinn annan leik í kvöld í undankeppni HM 2023 er liðið mætir Rússlandi í Sankti Pétursborg.

Ásamt Rússlandi er Ísland í riðli með sterkum þjóðum Hollands og Ítalíu, en næsti leikur Íslands er eftir áramótin, 24. febrúar heima gegn Ítalíu.

Hérna er heimasíða mótsins

Leikurinn í kvöld gegn Rússlandi hefst kl. 17:00 og verður í beinni útsendingu á RÚV2.

Karfan spjallaði við Kristinn Pálsson leikmann liðsins nú í morgun á síðustu æfingu þeirra fyrir leik kvöldsins. Talar Kristinn um góða stemningu í hóp liðsins og að það að hreyfa boltann vel muni hjálpa þeim gegn sterku liði Rússlands í kvöld.

Viðtal / Hannes Sigurbjörn Jónsson

Fréttir
- Auglýsing -