Stjarnan tók á móti ÍR í því sem undirritaður myndi lýsa sem nokkuð furðulegum leik sem Stjarnan vann með minni mun en sakir stóðu til. Eftir nokkuð hetjulega baráttu Breiðhyltinga stóðu heimamenn uppi sem sigurvegarar, 102-96.
Leikurinn byrjaði nokkuð fjörlega og Stjarnan byrjaði leikinn eins og þeir hafa byrjað aðra leiki á tímabilinu, illa. Tapaðir boltar, illa tímasett skot og slakur varnarleikur í upphafi skilaði sér í því að ÍR komst fljótlega 14 stigum yfir og það fór að fara um fólk í nokkuð fámennri Stjörnustúkunni í kvöld.
Þeir rönkuðu þó við sér og tókst með herkjum að fara inn í hálfleikinn 7 stigum yfir. Í þriðja leikhluta voru heimamenn mun sterkari, Stjörnumenn keyrðu upp hraðan, skoruðu 37 stig gegn 26 og salurinn andaði nokkru léttar. ÍR tókst þó að hræða heimamenn með svona nokkurs konar plat endurkomu. Nógu mikið til þess að hræða fólk, en ekki nógu mikið til þess að sigur Stjörnunnar væri í hættu. Viðeigandi í aðdraganda Hrekkjavöku.
Nojel Eastern skoraði 26 stig fyrir Stjörnuna og Hilmar Henningsson bætti við 24. Hjá ÍR skoraði Tómas Orri Hjálmarsson 23 stig.





