Þórsarar á Akureyri máttu játa sig sigraða gegn toppliði Hauka í mikilli körfuboltaveislu í Höllinni í kvöld, 100–126, í 1. deild karla. Þó heimaliðið hafi náð að skora hundrað stig reyndust gestirnir úr Hafnarfirði of erfiðir viðureignar og refsuðu grimmilega í sókninni.
Viðtal við Rúnar Ólafsson, þjálfara Þórs Akureyrar, má sjá í spilaranum hér að neðan.





