HomeBónus deildinBónus deild karlaKR og Álftanes fögnuðu sigrum á upphafskvöldi Icelandic Glacial mótsins

KR og Álftanes fögnuðu sigrum á upphafskvöldi Icelandic Glacial mótsins

Fyrstu tveir leikirnir í karlakeppni Icelandic Glacial mótsins fóru fram í Þorlákshöfn í dag þar sem Álftanes og KR hrósuðu sigrum.

Álftanes lagði Njarðvík örugglega, 103–80, í opnunarleik mótsins eftir að hafa lagt grunninn strax í upphafi með 32–18 forystu eftir fyrsta leikhluta. Siggi Pé fór fyrir liði Álftaness með 20 stig, Dedrick Basil skoraði 18 og Laksa Laksa bætti við 17 stigum. Hjá Njarðvík var Sadio Doucouré atkvæðamestur með 17 stig og 7 fráköst, Aleksa Ilic skoraði 16 og Makve Richard bætti við 13 stigum.

Í síðari leik kvöldsins hafði KR betur gegn gestgjöfum Þórs Þorlákshafnar í miklum spennuleik, 101–99. Þórsarar leiddu 56–52 í hálfleik en KR-ingar sneru leiknum sér í vil í síðari hálfleiknum. Roberts Berzins og Linards Jaunzems leiddu stigaskor KR með 25 stig hvor, en Rashan Davis skoraði 12 stig. Í liði Þórs voru Djordje Dzeletovic og Joey Holifield stigahæstir með 24 stig hvor og Sigvaldi Eggertsson bætti við 22 stigum.

Fréttir
- Auglýsing -