HomeBónus deildinBónus deild karlaKR meistari meistaranna eftir öruggan sigur í Grindavík

KR meistari meistaranna eftir öruggan sigur í Grindavík

KR hampaði fyrsta titli tímabilsins í körfuknattleik karla í kvöld þegar liðið lagði Grindavík að velli með 27 stiga mun, 106–79, í Meistarakeppni KKÍ í HS Orku-höllinni.

Heimamenn byrjuðu leikinn af krafti, leiddu 13–4 snemma leiks og unnu fyrsta leikhlutann 22–17. Þar með var hins vegar sprettur Grindvíkinga á enda, því KR gjörsamlega læsti vörninni og setti í annan gír í öðrum leikhluta. Vesturbæingar unnu leikhlutann með yfirburðum, 31–12, og fóru því með 14 stiga forystu inn í hálfleikinn, 53–39.  

Í síðari hálfleik héldu KR-ingar ótrauðir áfram að refsa og náðu mest 28 stiga forystu þegar staðan var 70:98. Mikill munur var á breidd liðanna, en bekkur KR skoraði heil 46 stig á móti aðeins 13 stigum frá varamönnum Grindavíkur. Þá voru KR-ingar beittari í teignum þar sem þeir skoruðu 42 stig gegn 34 stigum heimamanna og nýttu sóknarfráköst sín afar vel með 19 stigum á móti fjórum hjá Grindavík. KR hitti betur úr öllu, 54% í tveggja stiga skotum og 40% fyrir utan þriggja stiga línuna, en Grindavík náði einungis 44% og 31% nýtingu. Einnig réðu KR-ingar frákastabaráttunni með samtals 49 fráköst gegn 39 fráköstum heimamanna.  

Friðrik Anton Jónsson fór fyrir sóknarleik KR með 21 stig og Adam Ramstedt var öflugur undir körfunni með 9 fráköst. Nýi leikmaðurinn Rafail Lanaras spilaði afar vel og stjórnaði spilinu glæsilega með 8 stoðsendingar, en liðið í heild sýndi gríðarlegt öryggi með 2,9 stoðsendingar á hvern tapaðan bolta.

Hjá Grindavík bar Mirza Bulic af með glæsilegri tvennu, skoraði 20 stig og reif niður 16 fráköst, en Valur Orri Valsson skoraði 17 stig og gaf 4 stoðsendingar.

Tölfræði leiks

Mynd / Jón Gautur Hannesson

Fréttir
- Auglýsing -