spot_img
HomeFréttirKR lagði ÍR í hörkuleik

KR lagði ÍR í hörkuleik

KR lagði ÍR í hörkuleik í Vesturbænum í kvöld er liðin mættust í Lengjubikar karla. KR fór betur af stað og leiddi eftir fyrsta leikhluta en með góðum öðrum leikhluta náði ÍR að minnka muninn niður í 3 stig áður en flautað var til hálfleiks, 43-40.

Liðin skiptust á að skora í upphafi þriðja leikhluta og þrátt fyrir að KR hafi leitt allan leikhlutann hleypti ÍR þeim aldrei langt frá sér og í lok leikhlutans munaði einungis tveimur stigum á liðunum, 66-64. KR jók forskot sitt í 8 stig í upphafi fjórða leikhluta með tveimur þristum frá Brynjari Þór Björnssyni og þann mun náði ÍR aldrei að vinna almennilega niður og fór svo að KR sigraði með 9 stigum, 86-77.

Stigahæstir í liði KR voru Ægir Þór Steinarsson með 25 stig, Vilhjálmur Kári Jensson með 19 stig og Brynjar Þór Björnsson með 15 stig. Hjá ÍR leiddi Oddur Rúnar Kristjánsson með 19 stig og Sveinbjörn Claessen kom þar á eftir með 16 stig.

Myndasafn (Bára Dröfn)

Fréttir
- Auglýsing -