Tveir leikir fóru fram í 8 liða úrslitum Dominos deildar karla. Á Akureyri sigraði KR heimamenn í Þór og eru því komnir í 2-0 forystu í einvíginu líkt og Stjarnan, sem að sigraði ÍR í Breiðholtinu. Næsti leikur KR og Þórs Akureyri er í Reykjavík á þriðjudaginn, en þar munu meistararnir freista þess að klára einvígið 3-0. Degi seinna, á miðvikudaginn, mætast Stjarnan og ÍR, þar sem að Garðbæingar freista þess að gera slíkt hið sama.
Hérna er yfirlit yfir öll einvígi 8 liða úrslitanna
Úrslit dagsins
8 liða úrslit Dominos deildar karla:
Stjarnan leiðir einvígið 2-0
KR leiðir einvígið 2-0