KR hafði í kvöld 11 stiga sigur á nýliðum Grindavíkur 62-51 þegar fyrsta umferð Domino´s deildar kvenna fór fram. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir fór fyrir liði KR með 21 stig og 9 fráköst en hjá Grindavík var Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir atkvæðamest með 14 stig og 3 fráköst. Vissulega eiga liðin eftir að fínpússa sig með hverjum deginum og bar leikur kvöldsins þess augljós merki.
Heimakonur í KR voru jafnan skrefi á undan Grindvíkingum í fyrri hálfleik en bæði lið voru þó að glíma við dræma nýtingu. Því til staðfestingar kom fyrsti þristurinn í hús þegar stutt var í lokaflaut fyrri hálfleiks. En að loknum fyrsta leikhluta leiddu KR-ingar 14-13.
Í öðrum leikhluta reyndu gulir gestirnir fyrir sér í svæðisvörn og það reyndist bara koma út á pari við maður á mann vörnina. Reyndar gerði KR 17 stig í leikhlutanum á meðan hvorki gekk né rak hjá Grindvíkingum. KR leiddi 31-19 í hálfleik þar sem Björg Guðrún Einarsdóttir fann loks fjölina fyrir utan þriggja stiga línuna og setti einn svellkaldan fyrir KR rétt fyrir lok fyrri hálfleiks. Það var fyrsti þristur leiksins eftir 10 sameiginlega misheppnaðar tilraunir liðanna.
Helga Einarsdóttir var spræk í fyrri hálfleik með 10 stig og 7 fráköst og þá var Sigrún Sjöfn Ámundadóttir með 8 stig og 6 fráköst. Hjá Grindavík var Helga Hallgrímsdóttir með 5 stig og 5 fráköst og Petrúnella Skúladóttir með 4 stig og 5 fráköst.
Skotnýting liðanna í hálfleik
KR: Tveggja 39,3% – þriggja 16,6% og víti 50%
Grindavík: Tveggja 32% – þriggja 0% (5 tilraunir) og víti 75%
Petrúnella Skúladóttir opnaði síðari hálfleik með fyrstu þriggja stiga körfu Grindavíkur í leiknum og minnkaði þannig muninn í 31-22. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir hrökk þá í gang og gerði næstu fimm stig KR. Heimakonur í röndóttu fengu að leika fast í þriðja leikhluta og gestirnir létu það á sig fá, svöruðu því ekki nægilega en það birti til þegar Alexandra Hauksdóttir setti gulan þrist og minnkaði muninn í 46-34 þegar allt benti til að KR væri að fara að stinga af. Staðan að loknum leikhlutanum var svo 46-36 KR í vil og vann Grindavík því leikhlutann 15-17.
Í fjórða leikhluta gerðu Grindvíkingar nokkrar heiðarlegar tilraunir til að jafna leikinn og náðu að minnka muninn í 52-45. Þegar svo rétt rúmar þrjár mínútur voru til leiksloka sleit KR sig frá að nýju með Sigrúnu í broddi fylkingar og kláruðu leikinn 62-51.
Reynsluboltarnir í Grindavíkurliðinu eiga miklu meira inni en það var Ingibjörg Yrsa sem steig upp í kvöld. Vissulega þungt fyrir Grindavík að leika án Ólafar Helgu sem er meidd en systurnar Hallgrímsdætur og Petrúnella verða að bæta við sig snúning sem og bandaríski bakvörðurinn Dellena.
Helga Einarsdóttir virðist við sitt besta form í liði KR um þessar mundir og ekki verður langt að bíða þess að Guðrún Gróa finni taktinn en það var Sigrún Sjöfn Ámundadóttir sem leiddi þær áfram í kvöld og eflaust ekki í síðasta sinn þetta tímabilið.
Tölfræði leiksins:
KR-Grindavík 62-51 (14-13, 17-6, 15-17, 16-15)
KR: Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 21/9 fráköst, Patechia Hartman 13/7 fráköst/8 stoðsendingar/5 stolnir, Helga Einarsdóttir 12/10 fráköst, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 7, Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir 4/5 fráköst, Björg Guðrún Einarsdóttir 3, Hafrún Hálfdánardóttir 2, Perla Jóhannsdóttir 0, Helga Hrund Friðriksdóttir 0, Sólrún Sæmundsdóttir 0, Kristbjörg Pálsdóttir 0, Anna María Ævarsdóttir 0.
Grindavík: Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir 14, Helga Rut Hallgrímsdóttir 13/11 fráköst, Petrúnella Skúladóttir 9/11 fráköst, Guðrún Ósk Guðmundsdóttir 7, Alexandra Marý Hauksdóttir 4, Harpa Rakel Hallgrímsdóttir 2, Jóhanna Rún Styrmisdóttir 2/6 fráköst, Rannveig María Björnsdóttir 0, Mary Jean Lerry F. Sicat 0, Katrín Ösp Eyberg 0, Julia Lane Figueroa Sicat 0, Eyrún Ösp Ottósdóttir 0.
Skotnýting liðanna í leikslok:
KR: Tveggja 43% – þriggja 8% og víti 56%
Grindavík: Tveggja 40% – þriggja 14% og víti 75%