KR komst í kvöld í undanúrslit Iceland Express deildar kvenna með sigri á Snæfell í Stykkishólmi og þar með unnu vesturbæingar viðureign liðanna 2-0. Ekki gekk það áfallalaust að þessu sinni í Hólminum þar sem rafmagnsleysi setti smávægilegt strik í reikninginn í kvöld.
Byrjunarlið leiksins.
Snæfell: Monique, Laura, Berglind, Helga, Alda.
KR: Guðrún, Hafrún, Hildur, Margrét, Chazny.
Snæfell riðu á vaðið með fyrstu körfunni frá Laura Audere en KR voru fljótar að koma sér fyrir forystunni í leiknum með þrist frá Margréti Köru og komust svo í 4-10. Snæfellsstúlkur réttu sig þó betur við í vörninni og náðu að halda sér inni í leiknum og voru skrefi á eftir þegar leið á fyrtsa hluta 14-16. Chazny Morris var hress fyrir KR búin að setja 12 stig þegar fyrsta hluta lauk 15-21 fyrir KR.
KR ruku af stað í upphafi annars hluta og skoruðu fyrstu 5 stigin. En Snæfell minnkaði jafnhratt niður í tvö stig 24-26 og voru að fylgja KR 1-4 stigum á eftir en herslumuninn vantaði að ná þeim alveg. KR stigu hins vegar alltaf betur upp í vörninni þegar á reyndi og náðu að stela boltum en hægt gekk sóknarlega að bíta Snæfell betur af sér sem fylgdu eins og skugginn og staðan 33-35 í hálfleik.
Atkvæðamestar í Snæfelli voru Monique Martin með 13 stig og 6 fráköst. Laura Audere með 9 stig. Hjá KR var Chazney Morris ennþá með 12 stigi úr fyrsta hluta og 4 fráköst að auki. Hildur Sigurðardóttir var svo komin með 10 stig.

Snæfell byrjaði með látum í þriðja hluta og náðu að jafna 35-35 og komust svo yfir 41-35 og það stuðaði KR stúlkur sem misstu boltann trekk í trekk. Margrét Kara var þó ekki á því að elta mjög lengi og átti 5 stig sem kom KR aftur yfir 43-44. Jafnt og spennandi var fram að stöðunni 49-48 fyrir Snæfell en þá tók KR til sinna ráða og áttu 7-0 sprett og komust í 49-55 og leikurinn var þeirra megin og Margrét Kara komin í mikið stuð og komust þær fljótt í 10 stiga mun 51-61. staðan eftir þriðja hluta var 54-64 fyrir KR sem voru að detta á sporið.
Snæfellsstúlkur voru ekki alveg hættar og voru að reyna að klóra í bakkann með flottum skotum en náðu ekki alveg flugi og voru KR stúlkur að fá sóknarfráköstin sín gefins oft á tíðum sem þær þökkuðu yfirleitt vel fyrir með körfu á meðan lítið af sóknarfráköstum Snæfells endaði með körfu. Mikið stuð var undir lokin og svo mikið að rafmagnið fór af Stykkishólmi þegar 1:07 voru eftir af leiknum og staðan 72-80 fyrir KR. Eftir um 10 mínútur hófust leikar að nýju.
Alda Leif smellti strax þrist í 75-80 og Snæfell átti boltann þegar 36 sekúndur voru eftir og Hrafn tók tíma í liðsspjall. Chazny Morris fékk boltann í lay-up og kom KR í 75-82. Snæfell voru þá búnar að missa Öldu Leif og Monique útaf með 5 villur. Mikið var hlaupið fram og til baka en KR sigraði 76-84 eftir góðann leik í lokin og eru komnar í undaúrslit á meðan Snæfellsstúlkur hafa lokið leik á þessu tímabili þó svo að allflestar eigi eftir úrslitakeppni í unglingaflokki.
Helsta tölfræði leikmanna:
Snæfell: Monique Martin 20/10 fráköst/3 bolta náð. Laura Audere 19/6 fráköst. Berglind Gunnarsdóttir 13/4 fráköst. Alda Leif Jónsdóttir 10/3 fráköst/6 stoðsendingar. Hildur Björg Kjartansdóttir 6/4 fráköst. Sara Mjöll Magnúsdóttir 3/3 fráköst. Björg Guðrún Einarsdóttir 3 stig. Helga Hjördís Björgvinsdóttir 2/4 fráköst. Ellen Alfa Högnadóttir 0. Birta Antonsdóttir 0. Sunna Rós Arnarsdóttir 0. Aníta Rún Sæþórsdóttir 0.
KR: Chazny Paige Morris 25/9 fráköst/3 bolta náð. Margrét Kara Sturludóttir 23/5 fráköst. Hildur Sigurðardóttir 14/5 fráköst/5 stoðsendingar. Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 10/6 fráköst. Hafrún Hálfdánardóttir 4/5 fráköst/3 stoðsendingar/3 bolta náð. Signý Hermannsdóttir 3/6 fráköst/4 stoðsendingar. Sólveig Helga Gunnlaugsdóttir 3/3 fráköst. Svandís Anna Sigurðardóttir 2 stig. Helga Einardóttir 0. Aðalheiður Ragna Óladóttir 0. Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir 0.
Dómarar: Jón Guðmundsson og Georg Andersen.
Umfjöllun: Símon B. Hjaltalín.





