spot_img
HomeFréttirKörfuboltaskóli Norðurlands boðaði fagnaðarerindið á Húnavöllum

Körfuboltaskóli Norðurlands boðaði fagnaðarerindið á Húnavöllum

Körfuboltaskóli Norðurlands hélt tvö körfuboltanámskeið í Húnavallaskóla á laugardaginn og gengu þau glimrandi vel. Á Húnavöllum er eins og á svo mörgum stöðum á Norðurlandi flott aðstaða í íþróttahúsinu til körfuboltaiðkunar.

Vegna heimsfaraldurs Covid-19 hafði námskeiði helgarinnar verið frestað um einhvern tíma, en samkvæmt forsvarsmanninum Helga Frey Margeirssyni var ánægjulegt að hafa náð að “skjóta inn námskeiði rétt fyrir sauðburð þegar álagið á mörgum bæjum í sveitinni eykst og minni tími til að sækja námskeið” Þá gaf Körfuboltaskólinn grunnskólanum fjóra bolta í leiðinni fyrir yngstu iðkendur sem þeir vona að verði nýttir vel.

Markmið Körfuboltaskólans er samkvæmt Helga að koma körfubolta framar í huga krakkanna þegar þau eru að horfa til íþróttaiðkunnar. Þar sem fámennið er, hentar körfuboltinn mjög vel og er aðstaðan oftast mjög góð.

Námskeiðin um helgina gengu vel samkvæmt Helga, krakkarnir voru mjög sprækir og áhugasamir, sem skilaði sér í framförum strax á þessu fyrsta námskeiði, en á þau mættu rúmlega 1/3 af nemendum grunnskólans. Annað þeirra var fyrir yngri bekki 1.-5. og svo það síðara fyrir eldri bekkina 6.-10.bekk. Þá vonar Helgi að næst náist meira en helmingur nemenda á slíkt námskeið. Þess ber að geta að námskeiðin voru krökkunum að kostnaðarlausu þar sem Ungmennafélögin Geislar og Bólhlíðinga bauð uppá námskeiðin sem er frábært framtak. Samkvæmt Helga var mikil jákvæðni með þetta og um leið spurt hvenær væri von á öðru námskeiði, en það verður vonandi sem fyrst.

Starfsemi Körfuboltaskólans hefur samkvæmt Helga verið mjög stopul í vetur þar sem sem Covid-19 hefur haft mikil áhrif á námskeiðahald, en þrátt fyrir það segir hann að tekist hafi að halda námskeið á Skagaströnd, Hólmavík, Hvammstanga, Sauðárkróki, núna Húnavöllum og næst á Blönduósi.

Myndir sem voru teknar á námskeiðunum:

Fréttir
- Auglýsing -