Hrafn Kristjánsson þjálfari meistaraflokka KR og nýkrýndur bikarmeistari verður yfirþjálfari körfuboltabúðanna hjá KFÍ í sumar. Með honum munu starfa einvalalið þjálfara og fyrsta ber að telja Finn Stefánsson sem hefur borið þjálfun yngri flokka KR á herðunum undanfarið. Þá mun fyrrum þjálfari Snæfells, Gefo Kotila hafa staðfest komu sína en búðirnar fara fram 5.-12. júní n.k. á Ísafirði.
Af heimasíðu KFÍ:
Erlendir þjálfarar eru einnig búnir að staðfesta komu sína. Hinn ástsæli fyrrum þjálfari KFÍ, Tony Garbaletto kemur en eins og kannski sumir vita hefur hann verið iðinn við kolann í Englandi og stýrir m.a. toppliðinu í efstu deild þar í landi. Hann þarf ekki frekari kynningar við nema við látum það nægja að hann er einn af þeim betri sem hér hafa starfað.
Næstan að nefna er engan annan en Geof nokkurn Kotila. Geof kemur frá Danmörku þar sem hann hefur verið við þjáflun og kennslu síðustu tvö ár, eftir að hann skilaði af sér með svo eftirminnilegum hætti fyrsta bikarmeistaratitli Snæfellinga og frábæru liði. Geof er auðvitað einn mesti reynslubolti í þjálfun sem finna má og er sannarlega hvalreki fyrir búðirnar og krakkana sem þangað koma. Ekki má svo gleyma því að hann er frábær þjálfari þjálfara, skemmst er að minnast þjálfaranámskeiðs sem hann hélt hér á landi fyrir skemmstu og gerður var góður rómur að. Það er því ekki ónýtt að fá þennan liðsmann í búðirnar.
Síðastan en ekki sístan teljum við góðvin okkar hann Nebojsa Vidic sem við höfum starfað með í æfingabúðum síðustu þrjú árin. Hann biður að heilsa frá Serbíu til allra vina sinna á Íslandi og er orðinn spenntur að koma í sumar. Nebosja er mjög góður tækniþjálfari og það verður enginn svikinn af hans framlagi.
Að venju munu fleiri gestaþjálfarar verða á ferðinni og vinna náið með þjálfurum búðanna. Að sjálfsögðu eru allir velkomnir þar. Við munum auglýsa verð og skráningu fljótlega. Frekari upplýsingar gefur Guðjón M. Þorsteinsson [email protected]