spot_img
HomeFréttirKörfuboltabúðir Brynjars í vetrarfríi grunnskólanna

Körfuboltabúðir Brynjars í vetrarfríi grunnskólanna

Brynjar Þór Björnsson margfaldur Íslandsmeistari með KR og fyrrum leikmaður íslenska landsliðsins verður með körfuboltabúðir í vetrarfríi grunnskóla Reykjavíkurborgar. Körfuboltabúðirnar fara fram 22., 25. og 26. október. . Búðirnar eru fyrir stelpur og stráka á aldrinum 8 – 16 ára (fædd 2006-2013) og er markmið búðanna að fara yfir grunnatriði körfuboltans.

Æfingarnar eru frá 9-12 og búðirnar fara fram í KR – heimilinu. Þjálfarar ásamt Brynjari verða þau Adama Darboe landsliðsmaður Danmerkur og leikmaður KR, Gunnar Ingi Harðarson leikmaður Ármanns og núverandi styrktarþjálfari KR.

Brynjar Þór hefur verið að bjóða upp á körfuboltabúðir í DHL-höllinni, á Sauðárkróki og um allt land síðustu ár. Hafa móttökurnar verið frábærar og er greinilegt að ungir jafnt sem aldnir eru ólmir í að komast í körfubolta.

Verðið er 12.000 kr fyrir allt námskeiðið og skráning fer fram hér.

Allar frekari upplýsingar um tímasetningu, verð og skráningu er að finna hér fyrir neðan og á facebook.

Fréttir
- Auglýsing -