Í gær var hinn árlegi fjölmiðladagur NBA, en þá fá fjölmiðlar tækifæri til að setjast niður með NBA leikmönnum til að ræða komandi leiktíð, leikmannaskiptin og annað það sem máli skiptir. Kobe Bryant lét það tækifæri ekki fram hjá sér fara, en skilaboð hans til Dwight Howard og annarra liðsfélaga glumdu hátt og skýrt um Staples Center.
"Á yfirborðinu þá hef ég aldrei verið með jafn mikla hæfileikamenn í kringum mig hérna. Hvort það skilar sér í öðrum titli verður svo bara að koma í ljós. En á blaði er þetta sterkt, við erum að tala um varnarmenn ársins, MVP, stjörnuleikmenn, það er af nógu að taka. Þetta eru allt leikmenn sem hafa verið þeir bestu í sinni leikstöðu á einum tíma eða öðrum." sagði Kobe, en skilaboð hans til Dwight og annarra leikmanna liðsins eru skýr: "Þetta er mitt lið. Ég vil vera viss um að Dwight viti þó að þegar ég legg skóna á hilluna víðfrægu, þá verður þetta liðið hans. Ég vil kenna honum allt sem ég mögulega get svo þetta lið geti haldið áfram á fullu gasi þegar ég hætti."
Af öðru er það helst að frétta að Eddy Curry fékk boð um að taka þátt í æfingabúðum hjá San Antonio Spurs, en óstaðfestar fregnir herma að hlutabréfaverð skyndibitastaða San Antonio hafi rokið upp við þessar fréttir.