spot_img
HomeFréttirKjartan Atli nefbrotinn - ætti að vera kominn á fullt eftir viku

Kjartan Atli nefbrotinn – ætti að vera kominn á fullt eftir viku

Kjartan Atli Kjartansson þarf að taka því rólega næstu daga en hann nefbrotnaði í síðustu viku á æfingu með Stjörnunni eftir samstuð við liðsfélaga sinn Marvin Valdimarsson.
,,Ég fékk högg á mitt nefið og það brotnaði frekar skringilega þannig að önnur nösin lokaðis eiginlega. Því þurfti að framkvæma aðgerðina um leið og bólgan væri búin að hjaðna. Aðgerðin var í gær og virðist hafa heppnast ágætlega, ég ætti svo að vera kominn á fullt eftir um viku fái ég grímu," sagði Kjartan í samtali við Karfan.is.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -