Annar leikdagur í A-riðli lokakeppni Eurobasket fer fram í dag þar sem Íslenska liðið er í brennidepli. Ef marka má fyrsta leikdag mótsins má búast við frábærum leikjum í dag þar spennan ræður ríkjum.
Ísland spilar við Pólland kl 10:45 að íslenskum tíma og er það fyrsti leikur dagsins. Leikurinn gæti orðið algjör úrslitaleikur fyrir Ísland ef liðið vill eiga möguleika á að komast áfram. Fyrirfram er Pólska liðið besti möguleiki Íslands á sigri en leikurinn verður mjög erfiður.
Leikir dagsins (Allir í beinni útsendingu á RÚV):
Ísland-Pólland kl 10.45
Grikkland – Frakkland kl 13:30
Finnland – Slóvenía kl 16:00