spot_img
HomeBikarkeppniKemst Njarðvík í úrslit? - „Bærinn er mjög þyrstur í bikar“

Kemst Njarðvík í úrslit? – „Bærinn er mjög þyrstur í bikar“

Undanúrslit Geysisbikars karla fara fram í dag með tveimur leikjum. Karfan hitar upp fyrir leikina með upphitun og viðtölum við leikmenn og þjálfara allra liða.

Næst er komið að Njarðvík sem mætir KR í undanúrslitum kl 20:15 í dag.

Njarðvík

Njarðvíkingar eiga möguleika á að komast í sextánda úrslitaleik sinn bikarkeppninni með sigri á KR í kvöld. Það eru fjórtán ár síðan liðið komst í Höllina síðast er liðið varð bikarmeistari 2005. Síðast var Njarðvík í undanúrslitum 2009 en þá var ekki leikið í Laugardalshöllinni.

Illa hefur gengið hjá liðinu síðustu ár í bikarkeppninni er spurning er hvort liðið geti snúið því við í ár. Njarðvík situr á toppi deildarinnar og þykir ansi sigurstranglegt í öllum keppnum.

Koma Elvars í liðið gerði það ansi óárennilegt en Njarðvík býr yfir mikilli breidd af hæfileikum. Langt er síðan liðið hefur verið jafn vel í stakk búið til að vinna titla og er því spurning hvort 13 ára bið eftir stórum titli verði á enda í Njarðvík þessa helgina.

 

Undanúrslitaviðureign: Gegn KR fimmtudaginn 14. febrúar kl. 21:15

Síðasti leikur þessara liða í deild: KR 55-71 Njarðvík – 4. febrúar 2019

Viðureign í 8 liða úrslitum: 87-66 sigur á Vestra

Viðureign í 16 liða úrslitum: 96-76 sigur á Þór Þ

Viðureign í 32. liða úrslitum: 78-68 sigur á Val

Fjöldi bikarmeistaratitla: 8

Síðasti bikarmeistaratitill: 2005

 

Fylgist með: Jeb Ivey

Ekki ungur, ekki efnilegur en alveg hrikalega mikilvægur. Tók þátt í síðasta stóra titli Njarðvíkur (Íslandsmeistari 2006) en hann var einnig viðstaddur síðasta bikarmeistaratitil Njarðvíkur. Þá var hann nefnilega leikmaður Fjölnis sem tapaði fyrir Njarðvík í úrslitaleiknum sem var fyrir 14 árum uppá dag.

Leikmaður sem stýrir leiknum frábærlega og tekur yfirleitt réttar ákvarðanir. Getur tekið liðið á sínar herðar og klárað leiki ef þess þarf.

Aukasendingin: Hitað upp fyrir bikarvikuna í aukaþætti

 

Viðtöl:

Fréttir
- Auglýsing -