Einn leikur er á dagskrá í Bónus deild kvenna í kvöld en það er ekki af verri endanum þegar grannaliðin Njarðvík og Grindavík mætast í Ljónagryfjunni klukkan 19:15.
Mikið er í húfi í toppbaráttunni en Grindavíkurkonur eru taplausar á toppi deildarinnar ásamt Stjörnunni með fimm sigra í fimm leikjum. Njarðvík situr hins vegar í fjórða sætinu með fjóra sigra og aðeins eitt tap og getur með sigri jafnað Grindavík og Stjörnuna að stigum.
Bónus deild kvenna:
19:15 Njarðvík – Grindavík




