HomeFréttirKemst ekki á æfingu í viku

Kemst ekki á æfingu í viku

 Emil Barja leikstjórnandi Hauka verð fyrir því óláni í leik Hauka og KFÍ í gær að fá fingur í augað og neyddist til að yfirgefa völlinn. Ljóst var að þegar slysið var að þetta var frekar alvarlegt en Emil er þekktur fyrir það að gefast ekki upp þrátt fyrir mikil átök á dansgólfinu.
Þegar að betur var að gáð blæddi úr auganu og hann sá ekkert og var þá rokið með hann upp á bráðamóttöku. Hann fór þar í skoðun og var svo sendur heim. Leikmenn Hauka heyrðu í honum eftir að leiknum lauk og var þá Emil orðinn hress miðað við atvik.
 
Emil fór í augnaðgerð í morgun, þar sem að læknar vildu frekar að hún yrði framkvæmd á augnlæknaskurðstofu, þar sem að augnlokið saumað sem og pípur sem liggja undir því.
 
Karfan náði í skottið á Emil eftir að hann kom úr aðgerð og sagðist hann bara vera nokkuð hress.
 
„ Ég er nokkuð hress já einginlega bara góður. Það voru saumuð sex sport í augnlokið á mér en nöglin á gaurnum hefur greinilega leikið lausum hala á því,“ sagði Emil sem var nýkominn úr tíma í Flensborg.
 
Emil verður frá æfingum í næstu viku en vonast til að getað spilað gegn Snæfell á föstudaginn næsta.
 
„Ég á víst að taka því rólega næstu vikuna en vonast til að getað verið með gegn Snæfell á föstudaginn. Ég fer aftur í skoðun á fimmtudaginn eftir viku þannig að það verður að koma í ljós þá,“ bætti hann við.

[email protected]

 
Fréttir
- Auglýsing -