HomeFréttirKeflvíkingarnir Aníta og Katrín lánaðar í Skallagrím

Keflvíkingarnir Aníta og Katrín lánaðar í Skallagrím

Skallagrímur og Keflavík hafa gert venslasamning hjá meistaraflokki kvenna tímabilið 2012-2013. Þær stelpur sem skrifuðu undir við Skallagrím á dögunum eru þær Aníta Eva Viðarsdóttir, 18 ára Keflavíkurmær og á að baki þónokkra unglingalandsleiki fyrir Íslands hönd. Hin er Katrín Fríða Jóhannesdóttir og er einnig Keflvíkingur.
Skallagrímskonur leika í 1. deild kvenna á komandi leiktíð en þar er Finnur Jónsson í brúnni og hér er hann á mynd með þeim Anítu og Katrínu sem leika undir hans stjórn á komandi tímabili.
 
Frétt og mynd af www.skallagrimur.is
  
Fréttir
- Auglýsing -