Keflvíkingar tryggðu sér þriðja sætið í kvöld með öruggum sigri á Grindavík 86:71. Keflvíkingar tóku frumkvæðið strax á fyrstu mínútu og voru yfir með 20 stigum í hálfleik.
Sem fyrr segir voru það Keflvíkingar sem voru í bílstjórasætinu allan tímann í leik þeirra gegn Grindvíkingum. Gestirnir eru vissulega særðir þessa daganna og bakvarðavandamál þeirra ætlar víst engan endi að taka en Helgi Jónas Guðfinnsson þjálfari þeirra sem ætlaði að leysa stöðuna náði aðeins að skila þremur mínútum fyrir þá þetta kvöldið. Ekki bætti úr skák að lykil leikmenn voru langt frá sínu besta.
Hugsanlegt ljós í myrkri þeirra Grindvíkinga í kvöld var Ármann Vilbergsson sem var nánast "automatic" eins og þeir kalla það í skotunum fyrir utan. Hann setti niður 12 stig á skömmum tíma í seinni hálfleik og forystan var komin niður í 13 stig. En Keflvíkingar voru einfaldlega allt of sterkir. Sigurður Þorsteinsson fékk að leika nokkuð lausum hala á blokkinni og það nýtti kappinn sér til fulls og skilaði 25 stigum.
Keflvíkingar munu mæta sjóð heitum ÍR-ingum í fyrstu umferðinni en Grindvíkingar fá Stjörnumenn í heimsókn í röstina í fyrsta leik.





