Stólarnir fóru síðan í sókn og eftir misheppnað þriggja stiga skot frá Rikka náði Helgi Rafn frákasti og fékk í kjölfarið tvö víti sem hann nýtti. Staðan jöfn, 90 – 90 og 40 sekúndur eftir. Keflavík fór í sókn, en lenti í vandræðum með sterka vörn heimamanna. Þegar tvær sekúndur voru eftir af skotklukkunni tók Ciric erfitt þriggja stiga skot úr horninu og setti það niður. Sean fékk tvö víti fyrir Stólana sem hann setti niður og síðan var brotið fljótlega á Magnúsi Gunnarssyni sem fékk tvö víti. Hann nýtti aðeins annað og staðan 92 – 94. Stólarnir fengu síðasta tækifærið í leiknum, en Hayward Fain hitti ekki úr þriggja stiga skoti um leið og tíminn rann út og Keflavíkursigur staðreynd. Þar með er draumurinn um úrslitakeppni úr sögunni hjá Stólunum þar sem Haukar hafa betur innbyrðis og eru með tveimur stigum meira, en þeir hafa verið nokkuð óheppnir í síðustu leikjum og margir tapast naumlega. Með sigrinum jöfnuðu Keflvíkingar, KR og Grindavík að stigum í 2. – 4. sæti. Þeir fá einmitt Grindavík í síðasta leik á meðan KR fær deildarmeistarana í Snæfelli í heimsókn.
Keflavík vann í Síkinu: Úrslitakeppnin úr sögunni hjá Stólunum
Keflavík sótti heim Tindastól í kvöld í síðasta heimaleik Tindastóls í deildarkeppninni í vetur. Með sigri voru Stólarnir komnir með möguleika á úrslitakeppni, en gestirnir í baráttu um þriðja sætið við nágranna sína í Grindavík. Þessi lið mættust einmitt í úrslitakeppninni fyrir ári og var þá boðið upp á mikinn spennuleik í Síkinu og þessi reyndist á endanum ekkert síðri.
Keflvíkingar mættu án Gunnars Einarssonar sem var veikur, en Stólarnir gátu teflt fram sínu sterkasta liði. Fyrir heimamenn byrjuðu Rikki, Helgi Freyr, Kiki, Hayward og Sean. Keflvíkingar byrjuðu með Thomas, Jón, Andrija, Hörð og Sigurð. Gestirnir byrjuðu heldur betur, en sóknarleikurinn var slakur í byrjun hjá báðum liðum. Þó átti Hayward Fain eina góða troðslu í stöðunni 4 – 4. Eftir sex mínútur var staðan 11 – 10, en þá tóku gestirnir við sér og skoruðu átta stig í röð. Stólar spýttu þá í lófana og sérstaklega Helgi Rafn sem fór á kostum í fyrsta leikhluta. Fimm stig frá honum og þristur frá Helga Frey minnkuðu muninn í tvö stig og að loknum fyrsta leikhluta var staðan 19 – 21. Helgi Rafn átti 11 af þessum 19 stigum heimamanna.
Í öðrum leikhluta harðnaði heldur leikurinn og bæði lið voru dugleg í villusöfnun og voru 17 villur dæmdar í leikhlutanum. Tindastóll komst fljótlega yfir en Keflavík var ekki á því að hleypa þeim langt framúr. Í stöðunni 34 – 34 sigu gestirnir aðeins framúr og náðu mest fimm stiga forskoti 36 – 41. Með mikilli baráttu og tveimur þristum frá frændunum Rikka og Svabba svöruðu Stólarnir fyrir sig og leiddu 46 – 45 í hálfleik. Fjöldi leikmanna í báðum liðum voru komnir með tvær villur, en aðeins Pálmi Geir Tindastólsmaður hafði krækt sér í þrjár, þrátt fyrir stutta viðkomu á vellinum. Helgi Rafn var kominn með 15 stig í fyrri hálfleik fyrir Tindastól, en hinum megin var Thomas Sanders með 12 stig. Í hléinu var 9. flokkur karla kallaður fram en þeir urðu bikarmeistarar á dögunum eftir sigur á Haukum.
Tindastóll byrjaði fyrstu mínúturnar í síðari hálfleik á vítalínunni því gestirnir brutu grimmt af sér og voru heimamenn komnir með bónusrétt eftir 1 mínútu og 48 sekúndur. Ekki höfðu Stólarnir hitt vel úr vítum í fyrri hálfleik, en heldur skánaði hittnin og náðu þeir 6 stig forystu, 55 – 49. Hörður Vilhjálmsson komst í villuvandræði á þessum kafla með fjórar villur, þar af eina tæknivillu. Keflvíkingar náðu áttum eftir þetta og um miðjan þriðja leikhluta voru þeir komnir einu stigi yfir. Út þriðja leikhlutann munaði einum til tveimur stigum á liðunum og í lok hans var staðan 69 – 71. Fyrir lokafjórðunginn voru þrír leikmenn Keflavíkur komnir með fjórar villur, þeir; Jón Nordal, Halldór og Hörður, en hjá Tindastóli var Hayward Fain með jafn margar.
Í upphafi síðasta leikhlutans virtust gestir vera að innbyrða sigur því þeir skoruðu 11 – 4 á Stólana og voru komnir með þægilegt forskot í stöðunni 73 – 82, en nóg var samt eftir af leiknum. Eftir leikhlé hjá Stólunum söxuðu þeir á forskotið og þegar rúmar fjórar mínútur voru eftir setti Rikki niður þrist og lagaði stöðuna í 81 – 82 og heldur farið að hitna í Síkinu. Sigurður Þorsteins var þarna kominn útaf með 5 villur hjá Keflvíkingum. Næstu fjögur stig voru Keflvíkinga, en Stólarnir svöruðu með næstu fjórum. Enn munaði því einu stigi og tæpar þrjár mínútur eftir. Enn og aftur skoraði Keflavík fjögur stig í röð eftir mistök hjá heimamönnum. Stólarnir voru ekkert á því að gefast upp og minnkuðu muninn í tvö stig 88 – 90. Þá fékk Thomas Sanders sína fimmtu villu eftir sóknarbrot, en lá eftir meiddur og varð smá hlé á leiknum við það.
Hjá Tindastóli var Helgi Rafn öflugur, sérstaklega í fyrri hálfleik. Hayward Fain og Sean Cunningham áttu góða spretti og Rikki og Svabbi skiluðu sínu, en Kiki var nokkuð mistækur.
Thomas Sanders var bestur í annars jöfnu liði Keflavíkur og átti þrjár fallegar troðslur og var með 24 stig. Andrija Ciric skilaði líka góðum leik með 14 stig og 9 fráköst.
Stigaskor:
Tindastóll: Helgi Rafn 23, Hayward 16, Sean 15, Friðrik 11, Svavar 11, Dragoljub 11, Helgi Freyr 3 og Pálmi Geir 2.
Keflavík: Thomas 24, Magnús Þór 15, Sigurður 15, Andrija 14, Hörður 11, Halldór 8 og Jón 7.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson og Rögnvaldur Hreiðarsson og höfðu í nógu að snúast, en alls voru dæmdar 59 villur í leiknum.
Texti: JS.
Fréttir





