spot_img
HomeFréttirKeflavík semur við Craion

Keflavík semur við Craion

 Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur samið við bandaríska leikmanninn Michael Craion um að leika með félaginu á komandi tímabili. Michael er um 196 cm kraftframherji og vegur um 100 kg. Verður honum ætlað það hlutverk í vetur hjálpa Almari Guðbrandssyni, Snorra Hrafnkelssyni og Andra Þór Skúlasyni undir körfunni.
 Michael Craion lék með Oral Roberts University í bandaríska háskólaboltanum þar sem hann skoraði um 12 stig og tók 6,6 fráköst að meðaltali í leik þau þrjú ár sem hann lék þar.
Fréttir
- Auglýsing -