Jóhann Ólafsson fór fyrir Grindvíkingum og setti 29 stig, hirti 8 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Jóhann var með rúmlega 50% nýtingu í leiknum sem verður að teljast frekar gott. Sigurður Þorsteinsson setti 21 stig, tók 9 fráköst og gaf einnig 6 stoðsendingar. Þorleifur Ólafsson var næsti maður á blaði hjá Grindavík með 15 stig og 5 fráköst. Hjá ÍR var Sveinbjörn Claessen stigahæstur með 19 stig og 7 fráköst. Næstu menn voru Hjalti Friðriksson með 15 stig og Terry Leake Jr. með 15 stig og 12 fráköst.
Í Vodafonehöllinni tóku Valsmenn á móti Keflavík sem hafa verið á mjög góðu róli uppá síðkastið. Michael Crain mætti með látum í kvöld, setti 21 stig og hirti 21 frákast með 39 framlagsstig. Næstu menn á blað hjá Keflavík voru Arnar Freyr jónsson með 19 stig og 6 stoðsendingar og Darrel Lewis með 16 stig.
Keflvíkingar eru því efstir í deildinni eftir fjórar umferðir með fullt hús stiga en næstu fjögur lið þar á eftir eru með þrjá sigra , KR, Haukar, Grindavík og Þór Þorlákshöfn, en KR á leik til góða gegn Stjörnunni.




