Ríkjandi meistarar Keflavíkur tóku á móti Haukum í fyrstu umferð Dominosdeildar kvenna í kvöld.
Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir var ekki með Keflavík í kvöld, væntanlega sökum meiðsla. Ingunn Embla Kristínardóttir er svo ekki tilbúin til að segja skilið við körfuboltann alveg strax og virðist ætla að spila áfram eins lengi og læknisráð leyfir
Haukar voru án aðalþjálfara síns, Bjarna Magnússonar, í kvöld en aðstoðarmaður hans, Ingvar Guðjónsson, leysti hann af hólmi og fékk hinn gamalkunna Henning Henningsson sér til aðstoðar.
Keflavík bar 76-74 sigur úr bítum í leik sem endaði á því að vera hníf jafn og gríðarlega spennandi.
Leikurinn byrjaði þó ekki þannig þar sem liðin hreinlega skiptu fyrstu þremur leikhlutanum á milli sín. Haukar byrjuðu leikinn af miklum krafti og yfirspiluðu Keflavík algjörlega sem voru varla mættar í búningsklefann, hvað þá á gólfið. Bríet Sif Hinriksdóttir lagaði þó málin aðeins fyrir Keflavík þegar hún kom með mjög góða innkomu undir lok fyrsta leikhluta, þar sem hún m.a. stal boltanum og skoraði með einkar glæsilegu evrópu skrefi.
Andy Johnston las hressilega yfir sínum stúlkum og mættu þær gjörbreyttar til leiks í öðrum leikhluta. Að sama skapi datt sjálfstraustið niður hjá Haukastúlkum og fóru þær að leita mjög mikið til Lele Hardy til að leysa sig út. Haukar héldu sér þó inn í leiknum með gríðarlegu magni af sóknarfráköstum.
Annars var annar leikhlutinn einvígi kananna þar sem Porche Landry fór á kostum og skoraði 14 stig fyrir Keflavík. Hardy var ekki mikið síðri með 11 stig.
Stigahæstar í hálfleik: Landry 16 stig og 4 fráköst fyrir Keflavík og Hardy 17 stig, 7 fráköst, 3 stoðsendingar og 3 stolnir boltar fyrir Hauka.
Þriðji leikhlutinn byrjaði ekki vel fyrir Hauka en Gunnhildur Gunnarsdóttir tognaði á ökkla eftir aðeins 30 sek. og var hún ekki búin að fá að spila mikið í leiknum þar sem að hún lenti í bullandi villuvandræðum í fyrri hálfleik. Haukastúlkur létu það þó ekki á sig fá og áttu þriðja leikhlutann. Keflavík virtust ekki vænlegar til árangurs á þeim tímapunkti. Bryndís fékk sýna fjórðu villu um miðjan leikhlutan og þurfti að setjast á bekkinn, það hafði sjáanleg áhrif á leik Keflavíkur.
Þegar rétt rúm mínúta var eftir af leikhlutanum gerðist mjög svo furðulegt atvik. Brotið var á Söndru Lind Þrastardóttir og skoraði hún í brotinu. Hún fór réttilega á vítalínuna og fékk aðeins eitt vítaskot. Hún virtist hins vegar vera sú eina sem var með það á hreinu þar sem að engin steig út, hvorki hjá Keflavík eða Haukum og boltinn skoppaði til Söndru sem tók þá sitt eigið frákast og fór næstum því í óáreitt sniðskot en þá loksins kveiktu hinir leikmennirnir á þessu og fékk hún smá truflun sem leiddi til þess að hún hitti ekki úr sniðskotinu sínu.
Fjórði leikhlutinn var hins vegar gríðarlega jafn og í járnum allan tímann. Þegar þrjár mínútur voru til leiksloka voru Haukar 5 stigum yfir en fóru illa að ráði sínu og brutu klaufalega af sér í tvígang þannig að Keflavík tókst að jafna. Keflavík setti einnig í lás í vörninni og stálu boltanum tvívegis af Haukum. Með rétt rúma mínútu til leiksloka og stöðuna jafna sýndi Sylvía Rún Hálfdanardóttir að hún er sko ekki smeyk við að taka þýðingarmikið skot, en hún smellti niður dýrum þrist fyrir Hauka. Ingunn Embla svaraði hins vegar strax fyrir Keflavík.
Keflavík spilaði svo fasta vörn og Haukar misstu boltann.
Sandra skoraði í næstu sókn og mikið fjör var komið í höllina, enda hún að koma þeim yfir.
Dagbjört Samúelsdóttir jafnaði því næst fyrir Hauka með 10 sek. eftir. Haukar sýndu svo af sér mikil glapræði þegar þær nánast hleyptu Landry í sniðskot. Keflavík því tveimur stigum yfir með aðeins 4 sek. eftir. Með aðeins tvær liðsvillur voru Keflavíkurstúlkur í góðum málum. Vörnin þeirra lokaði alveg og Haukar áttu ekki möguleika á skoti. Keflavík vann því magnaðan baráttusigur í kvöld.




