Heimasíða Keflavíkur segir frá skemmtilegri uppgangssögu Isma’il Muhammad sem lék með Keflavík fyrir nokkrum árum síðan. Eftirminnilegasta atvik kappans hér á landi var þegar háloftafuglinn Hörður Axel Vilhjálmsson tróð yfir hann í leik og kappinn var í kjölfarið sendur heim. Samkvæmt heimasíðu Keflavíkur var Isma’il að jafna sig á slæmum hnémeiðslum þegar hann var hér á landi og hefur því leiðin aðeins legið uppávið hjá honum síðan. Nú hefur NBA liðið Atlanta Hawks boðið honum samning til eins árs. Hérna má sjá troðsluna hans Harðar og það verður að segjast eins og er, hún er ansi mögnuð.