HomeFréttirKeflavík kom til baka og kláraði leikinn

Keflavík kom til baka og kláraði leikinn

Fjölnir fékk Keflavík í heimsókn í gær í Dalhúsin í 21. umferð Dominosdeildar kvenna. Fjölnisstúlkur byrjuðu leikinn af gífurlegum krafti og gjörsamlega yfirspiluðu Keflavík. Það var ekki að sjá á Keflavík í fyrri hálfleik að þær væru lið sem væri komið með 18 sigra í deildinni. En í seinni hálfleik sýndu Keflvíkingarnir sitt rétta andlit og þá fór ekki á milli mála hvort liðið er vant að klára sína leiki án tilliti til gangs leiksins og hvort sé vant að tapa þeim. 69-80 sigur hjá Keflavík í gær í hreint bráðskemmtilegum leik.
 
Byrjunarlið Fjölnis: Hrund Jóhannsdóttir, Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir, Fanney Lind Guðmundsdóttir, Bergdís Ragnarsdóttir og Britney Jones.
 
Byrjunarlið Keflavíkur: Sara Rún Hinriksdóttir, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir, Bryndís Guðmundsdóttir, Pálína Gunnlaugsdóttir og Jessica Ann Jenkins.
 
Fjölnir komust í 5-0 í upphafi leiksins með þrist frá Britney Jones og tveggja stiga frá Hrund Jóhannsdóttir. Bryndís Guðmundsdóttir skoraði fyrstu stig Keflavíkur og Sara Rún Hinriksdóttir jafna svo leikinn með þrist. Þá tók við 15-0 kafli á Fjölni þar sem þær fóru hreinlega allar á kostum og Keflavík var algjörlega óþekkjanlegt. Keflavík náði aðeins að svara í lokin og staðan að loknum fyrsta leikhlutanum 20-8.
 
Yfirspilun Fjölnis hélt áfram í öðrum leikhlutanum og komust þær mest 17 stigum yfir þar sem að Britney Jones leiddi sókn þeirra að venju eins og herforingi. Keflavík réð ekkert við hana og er hún með einhvern yfirgír sem hún getur sett í og hlaupið framhjá hverjum sem er. Hrund Jóhannsdóttir og Bergdís Ragnarsdóttir spiluðu einnig mjög vel í leiknum og í hálfleik var Hrund með 8/7 (þar af 3 sóknarfráköst) og Bergdís 8/6 (þar af 3 sóknarfráköst). Jessica Ann Jenkins var gjörsamlega týnd í fyrri hálfleik, hún misnotaði öll fimm skotin sín ásamt tveimur vítum og var bara með eina stoðsendingu.
 
Í seinni hálfleik komu Keflavík ákveðnar til leiks og með Birnu Ingibjörgu Valgarðsdóttur fremsta í flokki spiluðu þær sig aftur inn í leikinn. Það fór að vera vart við taugatitring hjá Fjölni og það slokknaði á Hrund og Bergdísi. Britney reyndi eins og hún gat að halda Fjölni yfir en það var ekki nóg. Keflavík vann fjórða leikhlutann 27-8 og var allt liðið að spila glimmrandi leik og taka þátt í stigaskoruninni. Jenkins hrökk loksins í gang og skoraði 11 stig í fjórða leikhlutanum. Keflavík sýndi hvers vegna að þær efstar í deildinni, sama hvernig þær eru að spila tapa þær aldrei trúnni að þær geti sigrað leikinn.
 
Stigahæstar hjá Fjölni voru: Britney Jones 31 stig/7 stoðsendingar, Hrund Jóhannsdóttir 12 stig/12 fráköst/2 varin skot, Bergdís Ragnarsdóttir 12 stig/10 fráköst.
.
Stigahæstar hjá Keflavík voru: Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 18 stig/14 fráköst, Sara Rún Hinriksdóttir 16 stig, Jessica Ann Jenkins 14 stig, Pálína Gunnlaugsdóttir 12 stig/7 fráköst/7 stoðsendingar/4 stolnir boltar.
 
Leikmaður leiksins: Liðsheild Keflavíkur
 
 
Mynd/ úr safni
Fréttir
- Auglýsing -