Í kvöld fór fram þriðji leikurinn í viðureign Vals og Keflavíkur. Staðan fyrir leikinn var 1–1 og því var hann mjög mikilvægur upp á að ná frumkvæði í einvíginu. Fyrri leikir þessara liða hafa verið jafnir og spennandi og því mátti búast við hörkuleik í kvöld. Það reyndist síðan eftir gangi leiksins: allir leikhlutarnir voru jafnir og skemmtilegir. Síðasti leikhlutinn var hnífjafn en Valur skoraði sigurkörfuna þegar aðeins 0,4 sekúndur voru eftir.
Jafnt á með öllum tölum í byrjun
Valsmenn byrjuðu leikinn betur og áttu Keflvíkingar í smá basli með að skora körfu í opnum leik, en sú fyrsta kom þegar leikhlutinn var tæplega hálfnaður. Eftir það fóru körfurnar að detta og liðin skiptust á að hafa forystu. Leikhlutinn endaði með tveggja stiga forystu Keflavíkur, 16–18.
Öfugt við fyrsta leikhluta tóku Keflvíkingar frumkvæðið í öðrum leikhluta. Þrátt fyrir mjög ágenga vörn Valsmanna náðu gestirnir að auka forystuna til að byrja með. En sem fyrr var þessi leikur stál í stál. Keflavík náði mest sjö stiga forystu og fór með þann mun inn í hálfleikinn, 33–40.
Stemmningin snýst á Hlíðarenda
Það var sama baráttan í þriðja leikhluta. Stundum bar kappið fegurðina ofurliði en hraðinn var mikill og það var hart barist. Um miðbik leikhlutans snerist stemmingin Valsmönnum í hag og þeir náðu að jafna eftir fyrsta heppnaða „pick-and-roll“ spilið hjá Kára og Kristófer. Keflavík tók leikhlé sem náði að stoppa flæði Vals í bili. Jafnræðið, spennan og lætin héldu áfram út leikhlutann og var staðan 55–52 fyrir Val að honum loknum.
Ótrúlegar lokasekúndur
Keflavík byrjaði síðan betur í síðasta leikhlutanum og komst yfir. Ljóst var að þessi leikur yrði eins og hinir tveir í seríunni; jafn og spennandi. Valsmenn náðu þó smá áhlaupi og fimm stiga forystu. Sigurður Ingimundarson tók þá leikhlé sem virkaði vel, líkt og í þriðja leikhluta.
Taiwo Woods var samt á öðru máli og raðaði niður stigum fyrir Val. Keflavík var þó aldrei langt undan og þegar tvær mínútur voru eftir minnkuðu gestirnir muninn í eitt stig eftir tvær þriggja stiga körfur í röð. Lokamínúturnar voru æsispennandi þar sem sigurinn gat endað hvoru megin sem var.
Leikurinn virtist ætla að enda með flautukörfu hjá Remy Martin sem kom Keflavík í 76–78. Það héldu að minnsta kosti Keflvíkingar (og nánast allir í húsinu), en það voru 0,4 sekúndur eftir á klukkunni. Valur tók innkast, Kári tók boltann, skaut og skoraði. Valur vann því ótrúlegan sigur, 79–78.
Atkvæðamestu leikmenn
Hjá Val átti Woods frábæran leik og skoraði 27 stig. Booker var með 12 stig og Kristófer var drjúgur með 9 stig og 13 fráköst. Hjá Keflavík var Bulic með 18 stig og 13 fráköst, Moller með 14 stig og Hilmar með 12 stig.
Fjórða viðureign liðanna fer fram á heimavelli Keflvíkinga þann 15. apríl.





