Spekingarnir sem spáðu Skallagrím falli fengu smá orðsendingu frá Páli Axel í kvöld. Þrátt fyrir tap Borgnesinga gegn Þór í lokaumferð deildarinnar komst Skallagrímur í úrslitakeppnina þvert á spár spekinga sem voru til umræðu þegar Karfan TV hitti Pál fyrir í Fjósinu.