Helgi Magnússon spilandi þjálfari KR sagði röndóttir hefðu gefið eftir undan ágangi Keflavíkur í kvöld þegar liðin mættust í DHL Höllinni. Helgi sagði sóknarfráköst Keflavíkur of mörg í kvöld og að nú væri ekkert annað í boði en að fara í þá leiki sem eftir eru eins og þeir væru sá síðasti hjá KR.