HomeNeðri deildirBæjarins Beztu deild kvennaFjórir leikir í Bæjarins bestu deild kvenna á morgun – bein útsending...

Fjórir leikir í Bæjarins bestu deild kvenna á morgun – bein útsending á KKÍ TV

Fjórir leikir eru á dagskrá í Bæjarins bestu deild kvenna í körfubolta í dag og hefst fyrsti leikur dagsins klukkan 13:00 þegar Haukar u taka á móti Þór Akureyri á Ásvöllum.

Þór Akureyri situr í 2. sæti deildarinnar með 12 stig eftir sjö leiki og getur jafnað topplið Þórs Þorlákshafnar að stigum með sigri í Hafnarfirði. Þá getur Selfoss, sem er í 3. sæti með 10 stig, einnig blandað sér enn frekar í toppbaráttuna þegar liðið heimsækir Keflavík b klukkan 17:00, á sama tíma og stigalaust lið Skallagríms tekur á móti KV í Borgarnesi og Aþena fær Njarðvík b í heimsókn klukkan 16:00.

Allir leikir dagsins verða í beinni útsendingu á KKÍ TV, en hægt er að nálgast dagskrána og beinar útsendingar hér.

Leikir dagsins í Bæjarins bestu deild kvenna:

  • Haukar u – Þór Akureyri kl. 13:00
  • Aþena – Njarðvík b kl. 16:00
  • Skallagrímur – KV kl. 16:00
  • Keflavík b – Selfoss kl. 17:00
Fréttir
- Auglýsing -