HomeFréttirJustin Bieber löðrungaður á Starbucks?

Justin Bieber löðrungaður á Starbucks?

Það mætti halda að við á karfan.is værum komin í samstarf við Smartlandið svona hvað fyrirsögnina varðar en svo er ekki. Ástæða þess að við fjöllum um Justin Bieber hér er sú að talið er að pjakkurinn hafi verið með vesen og á að hafa fengið kinnhest að launum frá Blake nokkrum Griffin sem oftar en ekki hefur verið umfjöllunarefni síðunnar.
 
Svo virðist sem að miðlar vestanhafs séu ekki enn búnir að staðfesta þetta almennilega en þetta á að hafa atvikast þannig að Bieber gekk inn á Starbucks í Vestur Hollywood og pantaði sér karamellu machiatto. Kaffibarþjónninn neitaði honum um afgreiðslu þar sem hann var ber að ofan með buxurnar hangandi langt niður fyrir velsæmismörk en Starbucks hefur þá stefnu að afgreiða ekki fólk sé það bert að ofan.  Á  það að hafa farið eitthvað illa í litla kútinn Bieber sem „snappaði“ og hótaði að lífvörðurinn sinn yrði með vesen ef hann fengi ekki bollann sinn.
 
Griffin, sem sat í mestu makindum við borð inn á staðnum og naut kaffibollans síns, fékk nóg og reyndi að tala stráksa til. Það hins vegar gekk ekki og Bieber varð enn æstari. Fyrir vikið dró Griffinn upp hramminn og veitti Bieber eitt stykki kinnhest sem varð til þess að hann féll í gólfið. Að sögn vitna stóð Bieber upp og kjagaði út með tárin í augunum. Hann var svo farin áður en lögreglan mætti á svæðið.
 
Nú er bara spurning hvort að Bieber taki þessu eins og maður og mæti næst í skyrtu þegar hann freistar þess að fá karamellu machiatto-inn sinn á Starbucks.
 
Fréttir
- Auglýsing -