spot_img
HomeFréttirJovana Lilja: Fengum góða hálfleiksræðu

Jovana Lilja: Fengum góða hálfleiksræðu

18:19
{mosimage}

 

(Vinkonurnar Jovana og Petrúnella með sigurlaunin í Laugardalshöll) 

 

Fyrirliði Grindavíkur Jovana Lilja Stefánsdóttir var kampakát eftir bikarsigur Grindavíkur gegn Haukum í dag. Grindavík vann leikinn 77-67 og gerði 6 stig í leiknum ásamt því að leika fína vörn á Kieru Hardy, leikstjórnanda Hauka. Þetta kemur fram á www.vf.is

 

,,Loksins kom þetta, þetta var rosaleg spenna og nú er bara algert spennufall í gangi hjá mér og vart hægt að lýsa þessari tilfinningu, þetta er allt annað en silfurverðlaunin,” sagði Jovana kampakát í leikslok.

 

,,Við fengum góða hálfleiksræðu og byrjuðum fyrir vikið loksins að spila vörn í síðari hálfleik og þá kom þetta. Nú tekur bara við skemmtun hjá okkur og hún á örugglega eftir að standa út alla vikuna,” sagði Jovana Lilja Stefánsdóttir í samtali við Víkurfréttir í leikslok.

 

www.vf.is  

Fréttir
- Auglýsing -