20:09
{mosimage}
Jón Björn Ólafsson þakkar fyrir sig
Stjórn KKÍ heiðraði Jón Björn Ólafsson á ársþingi KKÍ sem haldið var á Flúðum um síðustu helgi.
Jón Björn hefur unnið frábært starf í vetur við að fjalla um körfubolta. Hann hefur skrifað ótal pistla um leiki sem birst hafa á vf.is og karfan.is.
Jón Björn hefur verið mjög iðinn við skrifin í vetur og mætt á alla körfuknattleiksviðburði sem hann hefur átt möguleika á. Má þar nefna að Jón Björn mætti á ársþingið á Flúðum og var með fréttaflutning jafnóðum á karfan.is. Einnig gerði hann bikarkeppni og úrslitakeppni yngri flokka mjög góð skil ásamt ýmsum fjölliðamótum.
Mynd: www.karfan.is