HomeFréttirJón Ólafur valinn bestur

Jón Ólafur valinn bestur

Í þessum töluðu orðum var verið að afhenda viðurkenningar fyrir úrvalslið seinni hluta vetrar í Iceland Exprss deild karla. Jón Ólafur Jónsson var kosinn bestur.
 
Í úrvalsliði karla eru Pavel Ermolinskij og Marcus Walker úr KR, Pálmi Freyr Sigurgeirsson og Jón Ólafur Jónsson úr Snæfell og Sigurður Gunnar Þorsteinsson úr Keflavík.

Dugnaðarforkurinn var valinn Helgi Rafn Viggósson úr Tindastól og besti þjálfarinn Hrafn Kristjánsson úr KR.

 
Besti dómarinn var valinn Sigmundur Már Herbertsson.

Mynd: Úrvalslið Iceland Express deildar karla í síðari hluta deildarkeppninnar.

Fréttir
- Auglýsing -