Jón Arnór Stefánsson gerði 13 stig í gær í góðum útisigri CAI Zaragoza gegn Fuenlabrada, 88-95. Jón var einnig með 3 fráköst og 2 stoðsendingar í leiknum en stigahæstur í liði Zaragoza var Pablo Aguilar með 24 stig. Með sigrinum fór Zaragoza upp í 11. sæti deildarinnar með 5 sigra og 6 tapleiki.
Alicante kom í heimsókn til Hauks Helga Pálssonar og félaga í Manresa í gær og fóru gestirnir með 62-76 sigur af hólmi. Haukur Helgi lék í tæpar 9 mínútur í leiknum og skoraði tvö stig. Þá var hann einnig með eitt frákast og eina stoðsendingu. Eftir leikinn er Manresa í 10. sæti deildarinnar með jafn mörg stig og CAI Zaragoza.
Úrvalsdeildin í Slóvakíu
Helena Sverrisdóttir gerði 18 stig um helgina þegar Good Angels héldu óslitinni sigurgöngu sinni áfram og skelltu Poprad 63-99. Good Angels hafa því unnið alla 11 deildarleiki sína í Slóvakíu.
Þýska Pro A deildin:
Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar í MBC höfðu öruggan 102-65 heimasigur gegn Saar-Pfalz Braves í þýsku Pro A deildinni í gær. Hörður var stigahæstur í liði MBC með 25 stig, 1 stoðsendingu og 1 frákast. MBC eru sem fyrr á toppi deildarinnar með 22 stig, 11 sigra og 1 tapleik.
Sænska deildin:
Á föstudag máttu meistarar Sundsvall Dragons þola skell á útivelli, 92-74 gegn Södertalje Kings. Á sama tíma unnu Helgi Magnússon og félagar í 08 Stockholm góðan eins stigs útisigur á Uppsala Basket, 75-76.
Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur í tapleik Sundsvall með 21 stig og 4 fráköst. Pavel Ermolinski gerði 10 stig, tók 5 fráköst og gaf 7 stoðsendingar og Hlynur Bæringsson bætti við 7 stigum og 5 fráköstum. Þá var Helgi Magnússon með 11 stig og 6 fráköst í sigurliði 08 Stockholm. Johan Akesson var hetja Stockholm með tveggja stiga skot um leið og leiktíminn rann út.
Noregur
Það er misjafnt gengið hjá liðunum hans Vals Ingimundarsonar en hann stýrir bæði karla- og kvennaliðum Ammerud í norsku úrvalsdeildunum. Karlaliðið er í sjöunda og næstneðsta sæti deildarinnar með 2 sigra og 7 tapleiki. Kvennaliðið að sama skapi er í 2. sæti deildarinnar með 7 sigra og 2 tapleiki.




