spot_img
HomeFréttirJón Axel sagði íslenska liðið berjast fram í rauðan dauðann eftir tvíframlengdan...

Jón Axel sagði íslenska liðið berjast fram í rauðan dauðann eftir tvíframlengdan sigur gegn Ítalíu “Erum lítið land, en við erum með stórt hjarta”

Ísland lagði Ítalíu í tvíframlengdum naglbít í undankeppni HM 2023 í Ólafssal í kvöld, 107-105. Fyrir leik voru Ísland og Ítalía jöfn í 2.-3. sæti H riðils hvort um sig með einn sigur og eitt tap. í neðsta sæti riðilsins Holland með þrjá tapleiki og í því efsta Rússland með þrjá sigurleiki. Sigurinn setur Ísland því í annað sætið í riðlinum. Úr þessum riðil munu þrjú lið halda áfram á næsta stig keppninnar, en Ísland á eftir þessa Ítalíuleiki tvo leiki eftir í sumar. Heima gegn Rússlandi og heima gegn Hollandi.

Hérna er meira um leikinn

Karfan spjallaði við leikmann liðsins Jón Axel Guðmundsson eftir leik í Ólafssal. Jón Axel átti fínan leik fyrir Ísland í kvöld, á rúmum 38 mínútum spiluðum skilaði hann 11 stigum og 8 fráköstum.

Fréttir
- Auglýsing -