Jón Axel öflugur er Alicante opnaði tímabilið á öruggum sigri

Jón Axel Guðmundsson og félagað í HLA Alicante lögðu Clavijo í Leb Oro deildinni á Spáni í kvöld, 92-56.

Á tæpum 22 mínútum spiluðum í þessum örugga sigri skilaði Jón Axel 10 stigum, 4 fráköstum og 6 stoðsendingum.

Leikurinn var sá fyrsti sem Alicante leika í deildarkeppni tímabilsins, en næst eiga þeir leik þann 15. október gegn Leyma Coruna.

Tölfræði leiks